28.11.2008 16:16:46 / iceman

EKKI UM HELGINA

Sælir allir,

Það hryggir mig að segja ykkur að mælingarnar eru ekki "ON" um helgina.

Ég kem því upp á síðuna um leið og ég veit hvenær það verður.

Iceman.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 00:15:11 / iceman

Mynd



» 8 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 20:57:02 / iceman

Hávaða mælingar á fjórhjólin

FRESTAÐ
STEFNAN TEKIN Á SUNNUDAG 30. NOV

OF FÁIR TILKYNNTU KOMU SÍNA.
REYNUM AFTUR

Jæja drengir, allir að mæta með græjurnar.

Við erum að spá í að gera okkur smá glaðan dag og hittast og spalla og til stendur að gaur frá Aukaraf komi með mæligræjur og ætli að mæla hjá okkur hjólin og sjá hvað við erum að gera mikinn hávaða og skemmtilegast ef menn gætu komið með eins mysmunandi púst og uppsetningar eins og mögulegt er.
Origginal púst - Origginal pílulaust púst - Aftermarket púst osfrv......




Bara til þess að sjá hvernig við stöndum ef við ætlum að keppa á næsta ári, þvi líklegt er að nýjar reglur í þeim efnum fari fram á að hávaði fari ekki yfir einhver X decibel annars fái menn ekki að keppa.

Einnig er stefnt á að menn frá VÍK komi og hafi smá tölu fyrir okkur, þessir menn hafa unnið vel og ötullega að því að halda slóðum opnum, og geta frætt okkur um slóða akstur og þær reglur sem því fylgir.

Jafnvel smá myndasýning eða video eða eitthvað þannig í dúrnum líka, til að létta lundina.

Staður:     KefJet húsinu í Keflavík
Stund:      Laugardaginn kl 12

PS: commentið endilega og látið vita hvað þið hafið um þetta að segja, good or bad.

ATHUGIÐ !!!! ÞAÐ ER SPÁÐ RIGNINGU Á LAUGARDAG
EF VEÐUR VERÐUR LEIÐINLEGT, ÞÁ ER ÞAÐ SJÁLFGEFIÐ AÐ EKKERT VERÐUR AF ÞESSU, OG VIÐ FRESTUM ÞVÍ OG AUGLÝSUM ÞAÐ SÍÐAR.

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 20:23:05 / iceman

FKR/VÍR



Jæja allir saman, hérna er mynd af svæðinu sem við elskum allir.
Víkurferðin var fín, en afspyrnu léleg mæting, en eins og maðurinn sagði hér um árið "ÞAÐ VAR FÁMENNT EN GÓÐMENNT".
Og það eru orð að sönnu, og við skemmtum okkur konunglega, og auðvitað sumir meira en aðrir og við förum ekkert nánar út í þá lesbísku sálma, en þið megið vita að það var mjög gaman.

En það er svo sem ekki mikið búið að vera að gerast og menn einhvernveginn alltaf að hjóla hver í sínu horni og enginn veit af hinum.
Við erum búinir að fara nokkra túra upp í fjall að leika okkur, og hefur það verið fjandi gaman, og mikil tilþrif hjá sumum og menn tekið heilu og hálfu höfrungastökkin á hjólum sínum og virðist sem KTM sé í einhverjum höfrunga "fíling" þessa dagana.

Svo það nýjasta af FKR er að við erum nú "officially" orðnir undirklúbbur hjá VÍR, sem gerir okkur að stærri og sameinaðri heild sem hefur háværari rödd fyrir baráttumálum félaganna.
En það skal tekið fram að FKR verður áfram haldið í sinni upprunalegu mynd og rekinn sem sjálfstætt félag, en samt sem undirklúbbur VÍR og styttir spor okkar í að fá leyfi fyrir keppnishaldi og njótum við aðstoðar reynsluboltanna hjá VÍR þegar við ákveðum að halda okkar eigin keppnir á okkar eigin svæði.

Og af svæðinu og þeim málum öllum, þá gengur þetta eitthvað voooooðalega hægt í kerfinu og erum við hjá FKR að senda póst reglulega á yfivöld bæjarins til að halda þessu máli opnu öllu. Og við eigum nú fund með Umhverfis og skipulagssviði (voða titill) nú á miðvikudag og einhver svör ættu að lyggja fyrir þá, og mun ég þá koma því á framfæri hér á síðunni.

Fylgist með börnin góð og elskum friðinn og strjúkið á ykkur kviðinn....:haha:

Iceman splits....




» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 48609
FJÓRHJÓLASPJALLIÐ
Klukkan
mxsport.is
Könnun
Myndir þú koma með fjórhjólið þitt á Allsherjar hjólarúnt um Reykjanesið í sumar?
Já ekki spurning
24 atkvæði

Sennilega
8 atkvæði

Neibb ekki séns
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 33
Dagsetning
22. mars 2010
KENDA KLAW

Ein vinsælustu dekk í fjórhjóla bransanum, KENDA KLAW nú fáanleg hjá &Oacut