01.01.2009 21:22:54 / iceman

Gamlársdagur.... hrakfallaferð....

Gleðilegt ár allir saman.... og takk fyrir liðnu hjóla - árin...

Það er frekar grámyglulegt úti að lýtast, þegar við erum á leiðinni að gera okkur klára fyrir morgunrúntinn á gamlársdag... Búið að rigna alla nóttina, þungskýjað og ennþá kolsvarta myrkur...
Við Reynir erum komnir rétt yfir 9 niður í JET að gera okkur klára, og erum enþá að bíða eftir að heyra í Magga... sem var ekki enþá kominn kl 9:40.
Klukkan er orðin 20 mín yfir 10 og við orðnir allt of seinir, og menn orðnir pirraðir heyrði maður úti á Fitjum því það átti að leggja af stað klukkan 10 "SHARP".
Maggi þurfti víst eitthvað aðeins að dúlla sér, klippa stroffið af buxunum sínum og hafa þetta allt perfect... nema hann ákvað að hafa ekki hlýfina undir tannhjólinu og bremsudisknum. Það átti eftir að verða dýrkeypt.
Svo komum við á Fitjarnar um hálf 11 og fjölmenni af fjórhjólamönnum sem og tvíhjólamönnum komnir og tilbúnir að trylla um skagann, menn settu hjólin í gang og þeistu af stað.











Þessi ferð var með skrítnari ferðum sem ég hef farið í....hvert óhappið á fætur öðru leiddu þessa ferð allt frá byrjun.
Ég var ekki fyr lagður af stað eftir hitaveiturörinu, að ég mætti Stjána í Garðinum með Jóa Gauk á bakinu, það hafði slitnað keðjan hjá Jóa á fyrstu 200 metrunum, þeir gáfu okkur "thumbs up" þannig að við Palli héldum bara áfram.(1)
Ekki vorum við komnir miklu lengra þegar við komum að Magga stopp í kantinum hitting the starter button like CRAZY.... "ÞAÐ FER BARA EKKI Í GANG" gólaði hann í myrkrinu, hann hafði stoppað eftir að hafa dúndrað með afturtannhjólið á grjót, og beygði það í vinkil... (þið munið.... hlífin sem hann nennti ekki að setja undir...) en hann náði að berja það til baka með grjóti og var tilbúinn að halda áframm, en hjólið fór ekki í gang(2)... hmm... sniðugir þessi "KILL-SWITCH" sem hann var EKKI með tengdann á meðan hann startaði. GÓÐUR!!!!
En svo héldum við áfram og vorum komnir aðeins lengra... og þá fékk Reynir eitthvað stórt á á mikilli ferð næstum því í augað, tannhjóla hlífin undan hjólinu hans Geira hafði þotið undan hjólinu, (3)og gerði árás á Reyni... sem smeigði sér undan eins og .... og... já við skulum róa okkur. Þetta voru 3 óhöpp á byrjunarreit.
Við héldum ferð okkar áfram upp í Stapafell og lékum okkur þar í smá tíma.







Og þegar við vorum að gera okkur klára til að færa okkur um set og kíkja í Grindavík, þá kom Stjáni aftur í hópinn (eftir að hafa reitt Jóa Gauk út í bíl) og hann var þarna kominn á stóru ferðinni, og kom út úr beygju á enduro hjólinu sínu, og sá þá sand hól sem var í miðjum veginum, og hann hugsaði " hey það ekkert annað að gera en að láta sig detta af hjólinu" hvernig veit ég hvað hann hugsaði, jú hann sagði mér það hehehe.... hjólið endaði á kafi í sandhólnum, og Stjáni skautaði á hrjúfum malarveginum á álíka hrjúfum botni sínum þangað til að hann endaði á afturgaflinum á hjólinu sínu.(4) Hann hjólaði eitthvað smá í fjallinu, en ákvað að yfirgefa okkur út af eymslum í hné.
Hópurinn ákvað að taka stefnuna á gamla torfærusvæðið í Grindavík, og var tryllt af stað og slóðarnir þræddir með Grindavíkurveginum.
Svo var gamli vegurinn tekinn í átt að torfærusvæðinu og þar fóru Sverrir og Beggi fyrir hópnum, og Sverrir alkunnur þessum slóðum, hann hafði oft hjólað þarna áður, brunaði sem eldibrandur á veginum, hann vissi af hliði þarna sem er vanalega opið.... já einmitt "VANALEGA". Það var ekki ..... opið.
Sverrir hennti sér af hjólinu til að bjarga sér og hjólið þrumaði með annað framhjólið á staurinn á hliðinu og affelgaði, Beggi endaði í einhverju rugli og Kiddi horfði á allt saman.(5)
Þetta var eins og að koma að stórslysi, líkamar lágu um allt og menn veinuðu af sársauka en sem betur fer var það ekki raunin, Sverrir sagðist eitthvað aðeins fynna til "EINHVERSTAÐAR"  og vildi bara halda áfram, en þurfti að fara á affelguðu framdekki inn í Grindavík og reyna að pumpa í og koma því upp á aftur. Við hinir héldum áfram leið okkar í gegnum fjallgarðana í átt að gamla torfærusvæðinu í Grindavík.
Þegar þangað var komið, ákváðu menn aðeins að setjast niður, og flestir fengu sér einhverja hressingu, en hressingarnar voru í mysjöfnu formi.
Menn vættu kverkarnar, fengu sér kex, tóku í nefið og fengu sér smók.
Sverrir kom í þessari sömu andrá og var þá farið að leika sér aðeins í námunum og Sverrir, Beggi og Doddi þurftu að vera komnir heim eitthvað fyrr og yfirgáfu okkur á þessari stundu, og einhver verkur í öxl farinn að ágerast hjá Sverri.
















"Andskotinn....." heyrðist muldrað lágum róm fyrir neðan eitt barð sem við höfðum verið að leika okkur í, keðjan hafði dottið af hjá Magga (hlífarlausa) og keðjan öll krullast upp á fremra tannhjólið og ekki nokkur leið að koma henni til baka og allt pikk-fast.(6)



Menn reyndu hvað þeir gátu að koma keðjunni til baka, og höfðu einhverjir fundið spýtu sem hægt var að nota til þess að þvinga allt til baka. Það hafðist, og keðjan fór á og allt var í topp-lagi...... "NOT".
Við keyrðum inn í Grindavík, því einhverjir þurftu að fylla á tanka sína, hvort sem þeir voru á hjólunum þeirra eða framan á þeim sjálfum. Bensín og pylsur var heitasta mixið í sjoppunni og þá kom í ljós, að hjólið hjá Magga lak slatta af olíu, eitthvað hafði skemmst við keðju myssinn.
Maggi var out of action, og Kiddi, Geiri, Raggi og Viggó fóru í samfloti heim á þessari stundu og Kiddi sótti Magga í Grindavík.
Þegar restin af hópnum vorum búnir að skola niður glás af pylsum og að verða búnir að gera okkur klára að leggja af stað til baka, hringdi Sverrir.....
Þeir höfðu verið að hjóla til baka og komnir vel áleiðis (Sverrir, Beggi og Doddi) eitthvað virtist hafa farið forgörðum hjá Dodda og hann keyrt á fullum þunga á stál hlið.(7)
Hann brotnaði illa á úlnlið og marðist á brjósti, Doddi þurfti á sjúkrahús í aðgerð á hendinni.
Hjólið er illa farið, og greinilega má sjá að höggið hefur verið gríðarlegt.
Við þessar fréttir ákváðum við að taka því rólega heim svo allir kæmust nú klakklaust til byggða, og það virtist ætla að ganga upp, en það vildi nú bara þannig til, að þegar við komum að bláa-lóninu að hann Palli náði ekki beygju sem hann kom greinilega of hratt í skautaði út af malbikinu og ofan í hraun, en meiddi sig sem betur fer ekki, en var örlítið skellkaður. 8
Þannig að þetta voru í það heila 8 óhöpp í þessari 4. tíma ferð okkar um skagann. Ég vona að þetta hafi verið til þess að næsta ár byrji betur en þetta ár endaði.

Þannig var nú þessi ferð okkar á Gamlársdag, stórskrítin.

Doddi, ég vona að þú látir þér batna í hendinni sem fyrst, hafðu það gott vinur.



Iceman.

» 7 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 48519
FJÓRHJÓLASPJALLIÐ
Klukkan
mxsport.is
Könnun
Myndir þú koma með fjórhjólið þitt á Allsherjar hjólarúnt um Reykjanesið í sumar?
Já ekki spurning
24 atkvæði

Sennilega
8 atkvæði

Neibb ekki séns
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 33
Dagsetning
18. mars 2010
KENDA KLAW

Ein vinsælustu dekk í fjórhjóla bransanum, KENDA KLAW nú fáanleg hjá &Oacut